Sorpa bs., gas- og jarðgerðarstöð, lánveiting
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1814
31. október, 2018
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju. 1.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 3.október sl. 4.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 25.september sl. Lagt fram erindi frá stjórn SORPU bs., dags.12.sept.sl. þar sem óskað er eftir formlegri samþykkt sveitarstjórna vegna lántöku.
Lögð fram tillaga að afgreiðslu bæjarstjórnar:
"Ákvörðun um veita einfalda ábyrgð, veðsetningu í tekjum til tryggingar ábyrgð og veiting umboðs til að undirrita lánasamning og taka að sér þær skuldbindingar sem greinir í lánsamningi vegna láns SORPU bs frá Lánasjóði sveitarfélaga:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir hér með á bæjarstjórnarfundi að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns SORPU bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 750.000.000,- með lánstíma allt að 15 ár, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki sveitarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu á gas- og jarðgerðarstöð í Álfsnesi sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórnin skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda SORPU bs til að breyta ekki ákvæði samþykkta SORPU bs sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að Hafnarfjarðarbær selji eignarhlut í SORPU bs til annarra opinberra aðila, skuldbindur Hafnarfjarðarbær sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur kt. 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Svar

Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Einnig tekur til máls Ágúst Bjarni Garðarsson. Til andsvars kemur Adda María Jóhannsdóttir.

Ákvörðun um veita einfalda ábyrgð, veðsetningu í tekjum til tryggingar ábyrgð og veiting umboðs til að undirrita lánasamning og taka að sér þær skuldbindingar sem greinir í lánsamningi vegna láns SORPU bs frá Lánasjóði sveitarfélaga:

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir samhljóða með 11 greiddum atkvæðum hér með á bæjarstjórnarfundi að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, til tryggingar láns SORPU bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 750.000.000,- með lánstíma allt að 15 ár, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki sveitarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.

Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu á gas- og jarðgerðarstöð í Álfsnesi sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Bæjarstjórnin skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda SORPU bs til að breyta ekki ákvæði samþykkta SORPU bs sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.

Fari svo að Hafnarfjarðarbær selji eignarhlut í SORPU bs til annarra opinberra aðila, skuldbindur Hafnarfjarðarbær sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.

Jafnframt er Rósu Guðbjartsdóttur kt. 291165-3899 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Hafnarfjarðarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns