Íshella 1,3 og 3a, Fyrirspurn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1800
14. febrúar, 2018
Annað
Fyrirspurn
6. liður úr fundargerð skipulags- og byggingarráðs 9. febrúar s.l. Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 23.01.2018 að afgreiðslu deiliskipulagsbreytingarinnar yrði lokið skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við breytinguna með vísan til 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þess efnis að lagfæra þyrfti texta deiliskipulagsins. Lagður fram breyttur deiliskipulagsuppdráttur í samræmi við athugasemdir Skipulagsstofnunar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti lagfærðan uppdrátt deiliskipulagsins og leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir lagfærðan uppdrátt deiliskipulagsins með vísan til 1. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að erindinu verði lokið með vísan til 3. mgr. skipulagslaga 123/2010".
Svar

Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir samhljóða lagfærðan uppdrátt deiliskipulagsins með vísan til 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að erindinu verði lokið með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.