Íþróttafélög, þjónustusamningur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1812
3. október, 2018
Annað
Fyrirspurn
15.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 19.september sl. Lagt fram svar við fyrirspurn. 6.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 5.sept. sl. Lagt fram svar við fyrirspurnum. 3.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 15.ágúst sl. Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur bæjarstjóri Rósa Guðbjartsdóttir. Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Rósa Guðbjartsdóttir og Guðlaug Kristjánsdóttir svarar andsvari öðru sinni.
Til máls öðru sinni tekur Adda María Jóhannsdóttir. Til andsvars kemur bæjarstjóri Rósa Gubjartsdóttir. Adda María Jóhannsdóttir svarar andsvari.
Guðlaug Kristjánsdóttir tekur máls og kemur að eftirfarandi fyrirspurnum:
Sveitarstjórnarlög kveða meðal annars á um ábyrga meðferð bæjarfulltrúa á fjármunum sveitarfélagsins en í 65 gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 segir m.a. eftirfarandi: „Sveitarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með ábyrgum hætti...“
Eitt af þeim húsum á Kaplakrika sem nú er fyrirhugað að kaupa (íþróttahús) er talið hafa verið gefið FH af bæjarstjórn árið 1989. Samkvæmt samkomulagi sem gert var þar um var gert ráð fyrir að ýmis skilyrði yrðu uppfyllt frá og með árinu 2005, sem virðist síðan ekki hafa verið gert. Hinn eiginlegi gjafagjörningur hefur þannig ekki farið fram og er húseignin enn færð sem eign bæjarsjóðs í bókum sveitarfélagsins, að 80% hluta. Ljóst er miðað við það að hinn meinti gjafagjörningur hefur ekki verið gjaldfærður í bókum bæjarins. Komi til þess nú að bærinn kaupi húsnæðið að fullu þarf m.a. að gjaldfæra gjafagjörninginn.
Gangi ætlan meirihlutans eftir í þessu máli óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta svara við því hvernig ætlunin sé að mæta útgjöldum vegna þessa meinta gjafagjörnings upp á hundruð milljóna króna í ársreikningi sveitarfélagsins 2018 þannig að ekki verði halli á rekstri A hluta bæjarsjóðs. Einnig er óskað svara við því hvernig þessi fyrirhuguðu kaup á eigin eign eru talin samræmast 65. gr. sveitarstjórnarlaga um ábyrga meðferð fjármuna sveitarfélagsins. Svara er óskað eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar
Samkvæmt upplýsingum frá fyrrverandi forseta bæjarstjórnar var utanaðkomandi lögfræðingur að vinna að minnisblaði varðandi framangreint samkomulag við FH í lok síðasta kjörtímabils fyrir sveitarfélagið.
Með vísan til þess óska undirritaðir bæjarfulltrúar minnihluta bæjarstjórnar eftir að þetta minnisblað verði lagt fram, eigi síðar en fyrir næsta fund bæjarstjórnar.
Adda María Jóhannsdóttir Bjarney Grendal Jóhannesdóttir Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir Jón Ingi Hákonarson Sigrún Sverrisdóttir
Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir.
Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir. Ingi Tómason kemur upp í andsvar við ræðu Guðlaugar. Guðlaug svarar andsvari. Ingi kemur að andsvari öðru sinni. Guðlaug svarar andsvari öðru sinni. Ingi kemur að stuttri athugasemd.
Adda María kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingar, Bæjarlistans og Viðreisnar gera athugasemd við það svar sem gefið er við framlagðri fyrirspurn sem segir að færslan hafi ekki áhrif á sjóðsstreymi. Fyrirspurnin varðaði rekstur A-hluta bæjarsjóðs enda hlýtur bakfært virði 80% hlutar Hafnarfjarðarbæjar að koma einhvers staðar fram í bókhaldi sveitarfélagsins. Sömuleiðis hlýtur það þá að hafa áhrif rekstrarniðurstöðu ársins. Því ítrekum við fyrirspurn okkar varðandi það hvaða áhrif sá bókhaldsgjörningur að fullnusta gjafagjörning á hlut bæjarins í íþróttahúsi í Kaplakrika hafi á rekstur A hluta bæjarsjóðs.
Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir. Einnig Adda María Jóhannsdóttir. Þá kemur Guðlaug Kristjánsdóttir að svohljóðandi bókun:
Bæjarfulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Bæjarlista lýsa furðu á því að vinnsla svara við fyrirspurnum sem legið hafa fyrir vikum saman í málakerfi bæjarins sé ekki lengra komin en raun ber vitni. Að hluta til er um ítrekun þegar framlagðra spurninga að ræða, að hluta til eftirfylgni við fyrri svör. Hér með er þessi fyrirspurn ítrekuð í þriðja sinn og svara vænst án tafa á næsta fundi bæjarstjórnar.
Svar

Til máls tekur Adda María Jóhannsdóttir. Einnig tekur til máls Guðlaug Kristjánsdóttir og kemur að svohljóðandi bókun:

Undirrituð þakkar fyrir svar fjármálastjóra.
Um er að ræða 80% eignarhlut í parkethúsi að Kaplakrika sem í bókum bæjarins er metið á 92 milljónir, en fasteignamat er mun hærra.
Áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs eru 154 milljónir, sem þýðir að ef eignarmat á eignarhlut bæjarins væri í samræmi við fasteignamat færi A sjóður í mínus. Um það snerist fyrirspurnin í upphafi.

Einnig ítrekar bæjarfulltrúi Bæjarlistans þá staðreynd að lagalegur vafi leikur á réttmæti gjafagjörnings af þessu tagi, þ.e. hvort bær má gefa húseign úr safni sínu, samanber framlagt minnisblað Andra Árnasonar lögmanns.

Adda María kemur einnig að svohljóðandi bókun fyrir hönd fulltrúa Samfylkingar:

Hér liggur loksins fyrir svar við fyrirspurn sem fulltrúar flokka sem skipa minnihluta bæjarstjórnar lögðu fram þann 15. ágúst sl. Með svarinu fæst staðfesting á því að það að gjaldfæra nú gjafagjörning á 80% hluta bæjarins í íþróttahúsi í Kaplakrika hafi neikvæð áhrif á rekstrarniðurstöðu ársins.

Í framlögðum svörum hefur ítrekað verið vísað í að bókfært virði íþróttahússins sé 92 milljónir króna. Í gögnum er hins vegar að finna verðmat á íþróttahúsinu frá 2017 þar sem söluverð þess er metið yfir 425 milljónir. Í ljósi þess óska fulltrúar Samfylkingar svara við því, eigi síðar en á næsta fundi bæjarstjórnar, hvort ekki eigi að framreikna virði eignarinnar og vinna út frá því við skiptingu eigna í Kaplakrika?

Adda María Jóhannsdóttir
Friðþjófur Helgi Karlsson