Herjólfsgata 30 - 34, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1721
19. mars, 2014
Annað
Fyrirspurn
8.liður úr fundargerð SBH frá 11.mars sl. Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt Hornsteinum ehf f.h. Laxamýri ehf leggur fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum fyrir lóðirnar Herjólfsgötu 30 - 34 skv. meðfylgjandi gögnum dags. 03.03.14.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að deiliskipulagstillaga fyrir lóðirnar Herjólfsgötu 30-34 dags. 03.03. 14 verði auglýst skv. 41. gr. skipulagsslaga 123/2010." Jafnframt vísar skipulags- og byggingarráð tillögunni til afgreiðslu skipulagsyfirvalda og bæjarstjórnar Garðabæjar, þar sem lóðirnar eru hluti af deiliskipulagi fyrir Hleinar-Langeyrarmalir sem er sameiginlegt deiliskipulag Hafnarfjarðar og Garðabæjar.
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 atkvæðum.