Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2005 - 2025, breyting vegna Hamranessnámu.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1679
25. apríl, 2012
Annað
Fyrirspurn
10. liður úr fundargerð SBH frá 17.apríl sl. Lögð fram tillaga um að heimila breytinga á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar Hamranesnámu. Þeim hluta sem skilgreindur er sem íbúðarsvæði verði breytt í óbyggt svæði. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að unnin verði tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar Hamranesnámu. Þeim hluta sem skilgreindur er sem íbúðarsvæði verði breytt í óbyggt svæði. Mælt er með að breytingin teljist óveruleg skv. 2. mgr. 36. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að unnin verði tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar Hamranesnámu. Þeim hluta sem skilgreindur er sem íbúðarsvæði verði breytt í óbyggt svæði. Mælt er með að breytingin teljist óveruleg skv. 2. mgr. 36. greinar skipulagslaga nr. 123/2010."
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.