Aðalskipulag Norðurbær breyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1679
25. apríl, 2012
Annað
Fyrirspurn
5.liður úr fundargerð SBH frá 17.apríl sl. Tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar Norðurbæinn í Hafnarfirði dags. 11.07.2011. Jafnframt er unnið að endurskoðun deiliskipulags Norðurbæjarins. Kynningarfundur á aðalskipulagi og deiliskipulagi var haldinn 31. mars 2011. Tillagan var auglýst skv. 31. grein skiulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdatíma er lokið. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð samþykkir tillöguna og að málsmeðferð verði lokið skv. 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar Norðurbæinn í Hafnarfirði dags. 11.07.2011 og að málsmeðferð verði lokið skv. 32. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.