Einivellir 5, byggingarstig og úttektir
Einivellir 5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 416
4. júlí, 2012
Annað
Fyrirspurn
Einivellir 5 er skráð á byggingarstig 7, þrátt fyrir að engin lokaúttekt hafi átt sér stað. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar 12.03.2012 kl. 15:00 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar 30.04.2012. Byggingarstjóra Anton Kjartanssyni er skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sinnti hann ekki erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi beita ákvæði 56. og 57. greina sömu laga um dagsektir og áminningu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Anton Kjartansson frá og með 1. september 2012 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi hann ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram verður sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein laga um mannvirki nr. 160/2010.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 197732 → skrá.is
Hnitnúmer: 10075369