Selvogsgata 21.Ólöglegar framkvæmdir.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 416
4. júlí, 2012
Annað
Fyrirspurn
Kvörtun barst þann 3.janúar 2011 þar sem fram kemur að burðarveggir sem eru á samþykktri teikningu af Selvogsgötu 21 hafa verið fjarlægðir án leyfis. Skipulags-og byggingarfulltrúi gerði 05.01.11 eiganda skylt að tryggja burðargetu hússins á viðeigandi hátt og sýna fram á að svo hafi verið gert. Eiganda bæri að færa húsið í fyrra horf eða að öðrum kosti leggja fram teikningar af breytingunum með fullnægjandi sérteikningum af burðarvirki hússins. Gera bæri viðeigandi ráðstafanir innan fjögurra vikna. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekaði tilmæli sín 09.03.2011. Yrði ekki brugðist við þeim innan þriggja vikna mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á eiganda neðri hæðarinnar í samræmi við 56. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á eiganda, Íbúðalánasjóð frá og með 1. september 2012 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi ekki úrbætur ekki verið gerðar fyrir þann tíma.