Suðurhella 10, byggingarstig og notkun
Suðurhella 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 416
4. júlí, 2012
Annað
Fyrirspurn
Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 1 þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun, og að lögboðnar úttektir hafi ekki farið fram, þar á meðal fokheldisúttekt. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 05.05.2010 eigendum skylt að veita upplýsingar um málið innan tveggja vikna. Bærust þær ekki yrð málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Áður lagt fram bréf frá Þorsteini Gunnlaugssyni og Hreiðari Sigurjónssyni dags. 17.05.2010 þar sem gerð er grein fyrir málinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 02.02.11 eiganda skylt að sækja um fokheldisúttekt og öryggisúttekt innan fjögurra vikna. Ekki var brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi lagði dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Kristján Finnsson og sömu upphæð á eigendur Lagga ehf. kt. 660106-2270 frá og með 1. maí 2012 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi hann ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram yrði sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki. Frestur var veittur til 01.06.12, en ekkert hefur gerst í málinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Kristján Finnsson og sömu upphæð á eigendur Lagga ehf. kt. 660106-2270 frá og með 1. september 2012 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi byggingarstjóri ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram verður sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein laga um mannvirki nr. 160/2010.