Selhella 3, byggingarstig og notkun
Selhella 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 416
4. júlí, 2012
Annað
Fyrirspurn
Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 1 þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun, og að lögboðnar úttektir hafi ekki farið fram, þar á meðal fokheldisúttekt. Samkvæmt skilmálum átti húsið að skilast fokhelt 6. júní 2008 og fullbúið 6. janúar 2009. Frestur var veittur til 15.02.11. Ekki var brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að óska eftir fokheldisúttekt innan fjögurra vikna, en byggingarstjóra barst ekki bréf um það. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 14.03.12 byggingarstjóra skylt að óska eftir fokheldisúttekt innan fjögurra vikna og síðan lokaúttekt. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og eiganda í samræmi við heimild í mannvirkjalögum nr. 160/2010 og jafnframt senda erindi á Mannvirkjastofnun varðandi áminningu til byggingarstjóra í samræmi við sömu lög. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi lagði dagsektir kr. 20.000 á dag á eigendur Bréfabæ ehf og byggingarstjóra Guðmund Má Ástþórsson frá og með 1. júní 2012 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hefði hann ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram yrði sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki. - Lagt fram bréf frá Birni Traustasyni f.h. Bréfabæjar dags. 26.06.12, þar sem kemur fram að húsnæðið sé á sölu og ekki í notkun.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi fellst á að fresta innheimtu dagsekta til 1. október 2012.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204699 → skrá.is
Hnitnúmer: 10092681