Drekavellir 26.Lokaúttekt ólokið.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 513
4. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Drekavellir 26.Lokaúttekt ólokið. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar dags. 30.06.11, en ekki tókst að ljúka henni þar sem athugasemdir voru gerðar. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 11.01.12 byggingarstjóra skylt að ljúka við atriði sem gerð var athugasemd við og óska innan þriggja vikna eftir endurtekinni lokaúttekt. Jafnframt var bent á ábyrgð eigenda á eftirliti með störfum byggingarstjóra. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Erindið var ítrekað 29.02.12 og gefnar 3 vikur til að bregðast við erindinu. Frestur var veittur til 01.09.12 og síðan enn til 01.03.13. Ekkert hefur síðan gerst í málinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 14.08.13 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan 4 vikna. Yrði ekki brugðist við erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjórann í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. Frekari frestir yrðu ekki veittir.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Kristján Sverrisson frá og með 01.08.14 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi byggingarstjóri ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram verður sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein sömu laga.