Burknavellir 1a,b,c. Lokaúttekt.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 513
4. júní, 2014
Annað
‹ 22
23
Fyrirspurn
Ingvar Geirsson sótti um lokaúttekt 25.03.10 á Burknavöllum 1 a,b,c. Lokaúttekt fór fram í 15.06.2010 og endaði sem stöðuúttekt. Lokaúttekt er ólokið. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði til lokaúttektar dags. 23.06.11 kl. 09:00 í samræmi við 36. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarstjóra var gert skylt að gera þær ráðstafanir sem lögin kveða á um. Sótt var um breytingar á húsnæðinu 07.07.11, en erindinu frestað þar sem innsend gögn voru ófullnægjandi. Nýjar teikningar hafa ekki borist. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 14.08.13 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan tveggja vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á byggingarstjóra og senda erindi til Mannvirkjastofnunar um áminningu í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi leggur dagsektir kr. 20.000 á dag á byggingarstjóra Ingvar Geirsson frá og með 01.08.14 í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 hafi byggingarstjóri ekki sótt um lokaúttekt fyrir þann tíma. Jafnfram verður sent erindi til Mannvirkjastofnunar um að veita byggingarstjóranum áminningu í samræmi við 57. grein laga um mannvirki. Jafnframt er bent á ábyrgð eigenda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra skv. 15. grein sömu laga. Öryggismálum hússins er ábótavant.