Selhella 13,byggingarstig og notkun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 267
1. febrúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Borist hefur fyrirspurn frá heibriðgðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis varðandi samþykkta notkun hússins, sem er á athafnasvæði. Samkvæmt fasteignaskráningu er húsið enn skráð á byggingarstigi 1 (byggingarleyfi) þótt það sé fullbyggt og hafi verið tekið í notkun, og lögboðin lokaúttekt hefur ekki farið fram. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 10.08.10 byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan fjögurra vikna. Yrði það ekki gert yrði málinu vísað til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 20.10.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs sem bókaði eftirfarandi 02.11.10: "Skipulags- og byggingarráð gerir byggingarstjóra skylt að sækja um lokaúttekt innan fjögurra vikna. Verði það ekki gert verður málinu vísað til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir skv. 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997." Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að leggja dagsektir kr. 20.000/dag á byggingarstjóra Selhellu 13 frá og með 1. mars 2011 hafi hann ekki boðað til fokheldisúttektar fyrir þann tíma."