Ráð og nefndir 2010-2014, kosningar,
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1652
9. febrúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
Gerð grein fyrir væntanlegum breytingum. Kosningu vísað til bæjarstjórnar.
Svar

Lagðar fram eftirfarandi tilnefningar vegna breytinga í ráðum og nefndum: Sorpa bs.: Margrét Gauja Magnúsdóttir, Suðurgötu 38, taki að nýju sæti aðalmanns í stjórn Sorpu bs. í stað Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Fjarðargötu 17, taki sæti varamanns í stjórn Sorpu bs. í stað Eyjólfs Þórs Sæmundssonar.   Skipulags- og byggingarráð: Sigurbergur Árnason, Norðurvangi 44, taki sæti aðalmanns í skipulags- og byggingarráði, í stað Jóns Páls Hallgrímssonar. Klara Hallgrímsdóttir, Kvistavöllum 44, taki sæti varamanns í skipulags- og byggingarráði, í stað Sigurbergs Árnasonar.   Bæjarráð: Jóhanna Marín Jónsdóttir, Álfaskeiði 78, taki sæti varamanns í bæjarráði í stað Jóns Páls Hallgrímssonar.   Ekki bárust fleiri tilnefningar og teljast framangreind réttkjörin í stjórn Sorpu bs., skipulags- og byggingarráð og bæjarráð. Nefndaskipan helst að öðru leyti óbreytt.