Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs, gjaldskrá
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1652
9. febrúar, 2011
Annað
Fyrirspurn
1.liður úr fundargerð BÆJH frá 3.febr.sl. Lagt fram erindi Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins dags. 21. janúar 2011 og meðfylgjandi gjaldskrá. Gjaldskráin þarf samþykki allra aðildarsveitarfélaganna sex. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins."
Svar

Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarstjóri, tók til máls.   Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagða gjaldskrá.