Helluhraun 20, frágangur á lóð
Helluhraun 20
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 13 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 253
22. júní, 2010
Annað
Fyrirspurn
S.l. vor var sent bréf til húseigenda í hverfinu þar sem þess var farið á leit að tekið yrði til á lóðum, sótt um leyfi fyrir gáma o.fl. Við skoðun hefur komið í ljós að ekki hefur verið brugðist við þessu að Helluhrauni 20, og er baklóðin ein af 8 verst útlítandi í hverfinu. Skipulags-og byggingarfulltrúi gerði húseiganda skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til Skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 68.6 í byggingarreglugerð og grein 57 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 02.06.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags-og byggingarráð gerir húseiganda skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 68.6 í byggingarreglugerð og grein 57 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997."
Svar

Skipulags-og byggingarráð gerir húseiganda skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 68.6 í byggingarreglugerð og grein 57 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. 

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120831 → skrá.is
Hnitnúmer: 10032511