Helluhraun 2
Helluhraun 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 253
22. júní, 2010
Annað
Fyrirspurn
Jón Davíð Pétursson Flatahrauni 16 kvartar með tölvupósti dags. 14.04.2008 yfir umgengni á lóðinni Helluhraun 2. Eigendum húsnæðisins hefur áður verið bent á að fjarlægja gáma á lóðinni sem ekki er leyfi fyrir, og gefinn kostur á að tjá sig um málið. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði tillögu til skipulags- og byggingarráðs um að beitt verði dagsektum verði gámarnir ekki fjarlægðir. Húseigendum var gefinn frestur til 30. apríl að tjá sig um málið. Bréf barst frá lóðarhafa dags. 29.04.2008, þar sem lofað var að ganga frá lóðinni í viðunandi horf. Ekkert hefur gerst í málinu, og er lóðin ein af 8 verst útlítandi í hverfinu. Skipulags-og byggingarfulltrúi gerði 21.04.2010 húseiganda skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til Skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 68.6 í byggingarreglugerð og grein 57 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 02.06.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags-og byggingarráð gerir húseiganda skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 68.6 í byggingarreglugerð og grein 57 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997."
Svar

Skipulags-og byggingarráð gerir húseiganda skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 68.6 í byggingarreglugerð og grein 57 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997.