Holtsgata 12, burðarveggur
Holtsgata 12
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 232
25. ágúst, 2009
Annað
Fyrirspurn
Jónína G Hjaltadóttir biður með bréfi dags 22.6.2008 um lausn þ.e. að eigandi neðri hæðar setji upp burðarsúlu í stað burðarveggjar er hann reif í heimildarleysi. Skipulags- og byggingarfulltrúi bendti 24.06.2009 á að breytingin er brot á skipulags- og byggingarlögum, grein 43.1 og gerði eiganda neðri hæðar skylt að skila inn byggingarleyfisteikningum og burðarteikningum innan fjögurra vikna frá dagsetningu fundarins 24.06.2009. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 57,1 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 12.08.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu:"Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda skylt að skila inn byggingarleyfisteikningum og burðarteikningum innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 57.1 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda neðri hæðar skylt að skila inn byggingarleyfisteikningum og burðarteikningum innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir í samræmi við grein 57.1 í skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120943 → skrá.is
Hnitnúmer: 10032649