Reykjavíkurvegur 50, breyting verslun
Reykjavíkurvegur 50
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 230
7. júlí, 2009
Annað
Fyrirspurn
Smáragarður ehf sækir 14.01.2008 um breytingu á verslun. Nýtt anddyri á vesturhlið, neyðarútgangur á austurhlið einnig breytingar á innréttingu í verslun samkvæmt teikningum Jóhanns Sigurðssonar dagsettar 08.01.2009 ásamt stimpli frá heilbrigðiseftirliti og slökkviðliði höfuðborgarsvæðisins. Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkti erindið 14.01.2009 þegar leiðrétt skráningartafla hefði borist. Þar sem skráningartafla hefur ekki borist hefur byggingarleyfið ekki öðlast gildi. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði eiganda skylt 11.03.2009 að skila inn leiðréttri skráningartöflu innan tveggja vikna. Hefði hún ekki borist innan tilskilins tíma yrði málið sent til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um aðgerðir. Skipulags- og byggingarráð gerði 07.04.2009 húseiganda skylt að skila inn leiðréttri skráningartöflu innan tveggja vikna. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að lagðar verði dagsektir á eiganda frá og með 1. ágúst 2009 í samræmi við 57 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997  hafi umbeðin gögn ekki borist fyrir þann tíma."