Klukkuberg 32
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 230
7. júlí, 2009
Annað
Fyrirspurn
Borist hefur kvörtun frá nágrönnum vegna slæms frágangs og slysahættu af byggingarframkvæmdum. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 22.04.2009 eiganda og byggingarstjóra skylt að bæta úr þessu innan tveggja vikna. Yrði ekki úr því bætt innan tilskilins frests mundi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um dagsektir í samræmi við 57 gr. skipulags- og byggingarlaga. "Skipulags- og byggingarráð gerði 26.05.2009 eiganda og byggingarstjóra skylt að bæta úr umgengni á lóðinni innan tveggja vikna. Verði ekki úr því bætt innan tilskilins frests mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um dagsektir í samræmi við 57 gr. skipulags- og byggingarlaga. Ekki hefur verið brugðist við því.
Svar

Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að lagðar verði dagsektir á eiganda og byggingarstjóra frá og með 1. ágúst 2009 í samræmi við 57 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 verði ekki bætt úr umgengni á lóðinni innan þess tíma."