Vesturgata 18-20, framkvæmdir
Vesturgata 18
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1649
17. desember, 2010
Annað
Fyrirspurn
14. liður úr fundargerð SBH frá 14. des. sl. Borist hefur kvörtun frá eiganda Vesturbrautar 4a vegna framkvæmda við Vesturgötu 18-20 sem liggja niðri og girðinga sem reistar voru og eru fallnar niður á köflum og hæðarmunur milli lóða er mikill. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 11.03.2009 framkvæmdaraðila að Vesturgötu 18-20 skylt að gera grein fyrir áætlun og tímasetningu á frágangi lóðarinnar að Vesturgötu 4a innan tveggja vikna. Ekki var brugðist við því, og voru tilmælin ítrekuð 15.04.2009. Yrði ekki brugðist við því innan tveggja vikna myndi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um að beitt verði dagssektum í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga. Skipulags- og byggingarráð tók 09.06.2009 undir fyrirmæli byggingarfulltrúa. Yrði ekki brugðist við þeim innan tveggja vikna mundi skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga. Ekki var brugðist við erindinu. Bæjarráð samþykkti í umboði bæjarstjórnar að lagðar yrðu dagsektir á eiganda frá og með 1. ágúst 2009 í samræmi við 57 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefðu umbeðnar upplýsingar ekki borist fyrir þann tíma. Tilkynning barst frá Frjálsa fjárfestingabankanum um að hann yfirtæki eignina frá þeim tíma og mundi strax gera í málinu. Ekkert hafði gerst enn. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 20.01.2010 lóðarhafa, Frjálsa Fjárfestingarbankanum skylt að ganga frá lóðinni samkvæmt samþykktum uppdráttum. Yrði verkið ekki hafið innan þriggja vikna mundi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um að áður boðaðar dagsektir komi til framkvæmda. Áður lagt fram bréf Ingólfs Friðjónssonar hdl. f.h. Frjálsa Fjárfestingabankans dags. 17.02.2010, þar sem óskað er eftir samvinnu Hafnarfjarðarbæjar við frágang á lóðamörkum. Tengiliður bankans er Þórður Jónsson. Skipulags- og byggingarfulltrúi boðaði umboðsmann bankans til viðtals við landslagsarkitekt skipulags- og byggingarsviðs. Umboðsmaðurinn hringdi og ætlaði að koma í viðtal í vikunni eftir 18.03.2010. Síðan hefur ekkert til hans spurst. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 07.07.10 Frjálsa Fjárfestingarbankanum skylt að leggja án tafar fram teikningar varðandi frágang lóðarinnar, sem skyldi vera lokið í síðasta lagi 15. ágúst. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarfulltrúi vísa málinu til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um dagsektir kr. 50 þúsund á dag í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki var brugðist við erindinu. Skipulags- og byggingarráð gerði 19.10.10 Frjálsa Fjárfestingarbankanum skylt að leggja án tafar fram teikningar varðandi frágang lóðarinnar, sem skal vera lokið í síðasta lagi 1. desember. Yrði ekki brugðist við því mundi skipulags- og byggingarráð vísa málinu til bæjarstjórnar með tillögu um dagsektir kr. 50 þúsund á dag í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekkert hefur gerst í málinu. Áður lagt fram bréf Ingólfs Friðjónssonar hdl. f.h. Frjálsa Fjárfestingabankans dags. 18.10.10 þar sem talið var að framkvæmdir væru að hluta á kostnað Hafnarfjarðarbæjar. Því erindi var synjað á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 27.10.10. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 01.12.2010, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með tillögu um að erindi um dagsektir verði sent til bæjarstjórnar.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að dagsektir verði lagðar á eiganda Vesturgötu 18 - 20 kr. 50.000 á dag frá og með 01.02.2011 verði frágangi á lóðamörkum hússins að aðliggjandi lóðum ekki lokið fyrir þann tíma í samræmi við lóðarsamning, greinar 7, 8 og 10."
Svar

Bæjarstjórn samþykkti með 11 samhljóða atkvæðum framlagða tillögu.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122862 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001618