Fluguskeið 4, breyting á deiliskipulagi
Fluguskeið 4
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 15 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 221
10. mars, 2009
Annað
Fyrirspurn
Bjarni Sigurðsson og Darri Guðmundsson sækja um leyfi til að byggja hesthús skv. teikn. Ómars Péturssonar BFÍ. Byggingin fer 1m út fyrir byggingarreit. Deiliskipulagsuppdráttur dags. 08.01.2009 barst dags. 13.01.2009. Skipulags- og byggingarráð óskaði eftir skýringum frá umsækjanda á þörf fyrir stækkun hússins. Áður lagt fram bréf Bjarna Sigurðssonar dags. 10.02.2009. Frestað á síðasta fundi.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og heimilar umsækjanda að gera tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, sem síðan verður grenndarkynnt skv. 2. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga.

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 215890 → skrá.is
Hnitnúmer: 10101390