Kinnar, breyting á deiliskipulagi.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 15 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1606
3. febrúar, 2009
Annað
Fyrirspurn
4. liður úr fundargerð SBH frá 27.jan. sl. Tekin fyrir að nýju breyting á mörkum deiliskipulags Kinna og afmörkun lóðar fyrir leikskóla við Öldugötu tillaga skv. uppdrætti ASK-arkitekta dags. 09.10.2008. Deiliskipulagið hefur verið auglýst skv. 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Engar athugasemdir bárust. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 14.01.2008, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagstillöguna og að málinu verði lokið skr. 26. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á deiliskipulagi Kinna vegna afmörkunar lóðar fyrir leikskóla við Öldugötu dags. 09.10.2008 og að málinu verði lokið skr. 26. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkti tillögu ráðsins samhljóða með 11 atkv.