Aðalskipulag Hafnarfjarðar, breyting við Öldutúnsskóla
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 15 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1606
3. febrúar, 2009
Annað
Fyrirspurn
2. liður úr fundargerð SBH frá 27.jan. sl. Breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar við Öldutúnsskóla dags. 01.10.2008 í samræmi við deiliskipulagstillögu Öldutúnsskóla og nágrennis. Tillagan var auglýst í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b. Athugasemdafresti er lokið. Engar athugasemdir bárust. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 14.01.2008, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir aðalskipulagsbreytinguna og að málinu verði lokið skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 við Öldutúnsskóla dags. 01.10.2008 og að málinu verði lokið skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar


Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkti tillögu ráðsins samhljóða með 11 atkv.