Ásvellir, starfshópur v/uppbyggingar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3241
22. október, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju. Lagðar fram umbeðnar umsagnir. Annars vegar frá íþrótta- og tómstundanefnd og hins vegar frá eftirlitsnefnd með fjármálum íþróttafélaga. Íþróttafulltrúi mætti á fundinn og gerði grein fyrir málinu.
Svar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrir sitt leyti að heimila Haukum að fara í flýtiframkvæmdir á Ásvöllum samanber beiðni þeirra frá 1. september 2009 um sætispalla með 500 sætum. Heimildin er á þeim forsendum og með þeim rökum sem koma fram í erindi Hauka til þess að uppfylla undanþáguskilyrði KSÍ um keppnisleyfi fyrir meistaraflokka félagsins þannig að leikir þeirra geti farið fram á Ásvöllum í efstu deild karla og kvenna í knattspyrnu. Fyrirkomulag og framkvæmd verksins verði í samræmi við samþykktir framkvæmdaráðs."