Deiliskipulagsbreyting - Dísarstaðaland
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 43
19. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 83. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 15. desember sl. liður 10. Deiliskipulagsbreyting - Dísarstaðaland Tillaga að deiliskipulagsbreytingu í Dísastaðarlandi sem nær yfir hluta Asparlands, Bjarmalands, Fagralands og Huldulands, var samþykkt til auglýsingar af bæjarstjórn Árborgar þann 21. febrúar 2018. Frá samþykkt tillögunnar til auglýsingar hafði verið unnið skv. henni, en komið hafði í ljós að tillagan tók aldrei formlega gildi með birtingu auglýsingar í B-deild stjórnartíðinda. Tillagan var endurauglýst frá 27. október 2021 með athugasemdafresti til og með 8. desember 2021. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar.
Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að tillagan yrði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.