Deiliskipulag fyrir fjölbýlishús
Eyravegur 26
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 43
19. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Tillaga af 83. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 15. desember sl. liður 9. Eyravegur 26-30 - Deiliskipulag fyrir fjölbýlishús Lögð fram að lokinni auglýsingu nýtt deiliskipulag fyrir lóðina Eyravegur 26-30 á Selfossi. Markmið deiliskipulags er að byggja tvær hæðir til viðbótar ofan á núverandi hús á lóð nr. 26, en þar eru 35 litlar íbúðir. Með framkvæmdinni mun íbúðum í húsinu fjölga um u.þ.b. 16 og verða þá samtals 51 íbúðir. Lóð 28-30 er óbyggð og þar er gert ráð fyrir að muni rísa fjölbýlishús á 4 hæðum með allt að 54 íbúðum, auk heimildar fyrir verslunar- og þjónusturýmis í kjallara.
Lýsing tillögunnar var auglýst til kynningar frá 24. febrúar 2021 með athugasemdafresti til og með 17. mars 2021. Deiliskipulagstillagan var auglýst skv. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, í Lögbirtingarblaði, Dagskránni og Fréttablaðinu 27. október 2021 og var gefinn athugasemdafrestur til 8. desember 2021. Engar athugasemdir bárust.
Í umsögn Vegagerðarinnar var gerð athugasemd við fjölda tenginga frá Eyravegi. Brugðist hafði verið við athugasemd Vegagerðar og tengingum fækkað um eina. Gerð hafði verið óveruleg breyting á uppdrætti og greinargerð.
Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að tillagan yrði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.

800 Selfoss
Landnúmer: 188511 → skrá.is
Hnitnúmer: 10073426