Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 396
Samþykkt
Fyrirspurn
Lagt fram til afgreiðslu, drög að úthlutunarskilmálum styrktarsjóðs Reykjavíkurborgar til skógræktar á landi Reykjavíkurborgar.
Svar

Samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur ríka áherslu á uppbyggingu og eflingu grænna svæða í Reykjavík, meðal annars með markvissri skógrækt og þróun borgarskóga. Það er skýrt markmið nýs meirihluta að gróðursettar verði 50 þúsund trjáplöntur í borginni á kjörtímabilinu og þannig stuðlað að auknum gróðri, betra nærumhverfi og fjölbreyttari útivistarmöguleikum fyrir borgarbúa. Með reglum um styrki til skógræktar á landi Reykjavíkurborgar er stigið skref í þá átt að efla samstarf borgarinnar við félagasamtök og fagaðila á sviði skógræktar og grænna innviða. Slíkt samstarf er mikilvægt til að tryggja faglega uppbyggingu borgarskóga þar sem tekið er mið af staðháttum, líffræðilegri fjölbreytni og langtímaumhirðu. Meirihlutinn telur mikilvægt að nýta þekkingu og reynslu þeirra aðila sem hafa sérhæft sig í skógrækt og uppbyggingu útivistarsvæða. Með markvissri forgangsröðun, skýrum markmiðum og öflugu samstarfi viljum við stuðla að því að græn svæði og borgarskógar verði enn mikilvægari hluti af borgarumhverfi Reykjavíkur til framtíðar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að settur sé upp styrktarsjóður til eflingar skógræktar á landi Reykjavíkurborgar. Það er verðmætt að félagasamtök sem vilja leggja sitt af mörkum til að efla græn svæði, náttúru og útivist í borginni fái virkan stuðning af hálfu borgarinnar við að gera góða borg enn betri. Við teljum þó mikilvægt að við úthlutun styrkja verði sérstaklega horft til áhrifa skógræktar á núverandi vistkerfi og líffræðilega fjölbreytni. Vanda þarf val á svæðum og tegundum vel og gæta þess að skógrækt raski ekki öðrum náttúrugæðum að óþörfu. Mikilvægt er að skýrt sé hver beri ábyrgð á umhirðu og viðhaldi til lengri tíma og hvernig árangur verkefnanna verði metinn. Markmiðið hlýtur að vera að styrkirnir skili varanlegum ávinningi fyrir náttúruna, útivist og borgarbúa.