Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 396
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á samræmingu skilta á opnum svæðum á höfuðborgarsvæðinu.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar fagnar þeirri vinnu sem nú fer fram við að samræma merkingar og upplýsingaskilti á útivistarsvæðum höfuðborgarsvæðisins. Samræmdar og skýrar merkingar bæta aðgengi, auðvelda fólki að rata og stuðla að auknu öryggi þeirra sem nýta fjölbreytt útivistarsvæði okkar. Sérstaklega er ánægjulegt að horft sé til Græna stígsins, sem tengir saman útivistarsvæði Græna trefilsins þvert á sveitarfélagamörk og skapar fjölbreytta möguleika til göngu, hjólreiða og útivistar. Skýrar og aðgengilegar merkingar á Græna stígnum eru jafnframt mikilvægt lýðheilsumál, enda geta þær hvatt fleiri borgarbúa til útiveru og reglulegrar hreyfingar. Með því að gera göngu- og hjólaleiðir sýnilegri og auðveldari í notkun stuðlum við að bættri lýðheilsu og auknum lífsgæðum borgarbúa. Meirihlutinn leggur áherslu á mikilvægi samstarfs sveitarfélaganna við að skapa heildstæða og aðlaðandi ásýnd útivistarsvæða. Með samræmdu skiltakerfi má jafnframt stuðla að hagkvæmni í hönnun, uppsetningu og viðhaldi skilta. Mikilvægt er að nýta þau tækifæri sem felast í verkefninu til að gera náttúru og útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins enn aðgengilegri fyrir íbúa og gesti.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir góða og faglega vinnu við samræmingu skilta á útivistarsvæðum höfuðborgarsvæðisins. Verkefnið er til fyrirmyndar og mikilvægt skref í átt að heildstæðari og vandaðri ásýnd opinna svæða. Við viljum jafnframt minna á þá miklu ábyrgð sem Reykjavíkurborg ber á hönnun, frágangi og viðhaldi borgarlandsins. Gæði og fagurfræði skipta máli, ekki aðeins fyrir ásýnd borgarinnar heldur einnig fyrir upplifun fólks og umgengni um sameiginleg svæði. Við eigum að gera ríkar kröfur til þessara þátta og varast að gefa afslátt af gæðum í nafni skammtímasparnaðar. Vel hönnuð og vel viðhaldin almenningsrými skapa bæði verðmæti og virðingu fyrir umhverfinu.