Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 395
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á drögum að úthlutunarskilmálum styrktarsjóðs Reykjavíkurborgar til skógræktar á landi Reykjavíkurborgar.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur ríka áherslu á uppbyggingu og eflingu grænna svæða í Reykjavík, meðal annars með markvissri skógrækt og þróun borgarskóga. Það er skýrt markmið nýs meirihluta að gróðursettar verði 50 þúsund trjáplöntur í borginni á kjörtímabilinu og þannig stuðlað að auknum gróðri, betra nærumhverfi og fjölbreyttari útivistarmöguleikum fyrir borgarbúa. Með reglum um styrki til skógræktar á landi Reykjavíkurborgar er stigið skref í þá átt að efla samstarf borgarinnar við félagasamtök og fagaðila á sviði skógræktar og grænna innviða. Slíkt samstarf er mikilvægt til að tryggja faglega uppbyggingu borgarskóga þar sem tekið er mið af staðháttum, líffræðilegri fjölbreytni og langtímaumhirðu. Meirihlutinn telur mikilvægt að nýta þekkingu og reynslu þeirra aðila sem hafa sérhæft sig í skógrækt og uppbyggingu útivistarsvæða. Með markvissri forgangsröðun, skýrum markmiðum og öflugu samstarfi viljum við stuðla að því að græn svæði og borgarskógar verði enn mikilvægari hluti af borgarumhverfi Reykjavíkur til framtíðar.