Samþykkt að vísa til frekari rýni umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar þar sem skoðað verði hvort fyrir hendi sé samráðsvettvangur innan sviðsins sem nýta megi til samráðs um umferðaröryggisáætlun.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar þakka fyrir umsögnina og leggja til að tillögunni verði vísað til skrifstofu samgangna og borgarhönnunar. Skrifstofan kanni hvort nýta megi núverandi eða sambærilegan samráðsvettvang til að fá fram sjónarmið íbúa og annarra hagaðila við endurskoðun umferðaröryggisáætlunar Reykjavíkurborgar án aukins kostnaðar fyrir borgina. Íbúar þekkja aðstæður í hverfum sínum og geta bent á staði þar sem úrbóta er þörf, meðal annars á gönguleiðum barna. Meirihlutinn leggur áherslu á að slíkar ábendingar séu metnar með hliðsjón af faglegu mati svo þær aðgerðir fái forgang sem líklegastar eru til að auka öryggi vegfarenda.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að endurskoðun umferðaröryggisáætlunar Reykjavíkurborgar sé í vinnslu en gildistíma fyrri áætlunar lauk árið 2023. Mikilvægt er að ný áætlun byggi á faglegri þekkingu, rannsóknum og slysagögnum en jafnframt að leitað verði markvisst eftir reynslu og þekkingu íbúa í hverfum borgarinnar. Slysatölur einar og sér gefa ekki heildarmynd af umferðaröryggi og upplifun vegfarenda. Sérstaklega þarf að huga að öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda og tryggja að börn geti komist sjálfstætt og örugglega í skóla og frístundastarf. Mikilvægt er að ný áætlun liggi fyrir á árinu 2027 með skýrum og mælanlegum markmiðum, tímasettum aðgerðum og reglulegri eftirfylgni.