Síðast Frestað á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 391
Frestað
‹ 12
13
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúa Vinstrisins: Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að hefja undirbúning að endurskoðun aðgerðarbundinnar Umferðaröryggisáætlunar Reykjavíkurborgar til næstu fimm ára. Skulu viðhöfð ný vinnubrögð þar sem lýðræðislegum aðferðum er beitt við gerð hennar með aukinni aðkomu íbúa í hverfum. Áfram verði einnig unnið með sérfræðingum á sviði umferðaröryggismála og annars fagfólks. Þá verði leitað samráðs fulltrúa Vegagerðarinnar, Lögreglunnar, Samgöngustofu og hagsmunasamtaka eins og við á. Að vinnu lokinni skal umferðaröryggisáætlunin send í samráðsgátt til umsagnar. Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að vísa tillögunni til skrifstofu samgöngustjóra sem heldur utan um útfærslu og umgjörð verkefnisins og leitar liðsinnis annarra viðeigandi sviða og starfsfólks eins og þurfa þykir. Skal fyrirkomulag og útfærsla vinnunnar kynnt ráðinu í síðasta lagi í upphafi næsta árs og endurskoðunin unnin á árinu 2027.
Svar

Frestað.