Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar:
Lagt er til að Reykjavíkurborg láti vinna forhönnun og kostnaðarmat á varðveislu og endurbótum stúkunnar við Laugardalslaug, með það að meginmarkmiði að varðveita núverandi mannvirki og styrkja það með viðeigandi aðferðum. Byggt verði á fyrirliggjandi ástandsrannsóknum og áhættumati, en jafnframt lagt sjálfstætt mat á möguleika til styrkingar og endurbóta, þar á meðal með sjálfstæðu burðarvirki. Unninn verði samanburður á kostnaði, öryggi, endingartíma og umhverfisáhrifum varðveislu og endurbóta annars vegar og niðurrifs og nýbyggingar hins vegar. Samhliða verði unnin heildstæð hönnunartillaga þar sem framtíðarnotkun stúkunnar verði skilgreind og möguleikar á viðbyggingu við Sundlaugarveg kannaðir. Slík viðbygging, ein til tveggja hæða, gæti skapað ný rými, aukið notkunarmöguleika mannvirkisins og styrkt tengsl þess við nærliggjandi borgarumhverfi. Markmiðið er að tryggja að raunhæfar leiðir til varðveislu þessa merka mannvirkis hafi verið kannaðar til hlítar áður en tekin verður endanleg ákvörðun um niðurrif. Greinargerð fylgir tillögunni.
Svar
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu eignastýringar.