Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 293
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um heildarmat COWI á breytingum við Höfðabakka, sbr. 13. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 7. október 2026. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 13. október 2026.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir skýr svör sérfræðinga samgöngudeildar. Það vekur hins vegar athygli og nokkrum áhyggjum að ákveðið hefur verið að vinna áfram með endurgerð hægribeygjuframhjáhlaups þrátt fyrir að sérfræðingar borgarinnar telji slíka útfærslu skerða umferðaröryggi. Í umsögninni kemur skýrt fram að framhjáhlaupið fjölgi óljósastýrðum árekstrapunktum, auki hættu á meiri aksturshraða og flæki samspil akandi, gangandi og hjólandi vegfarenda. Jafnframt kemur fram að sviðsmynd 2, án framhjáhlaups, bæti afkastagetu gatnamótanna verulega og anni núverandi umferð. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja mikilvægt að umferðaröryggi allra vegfarenda sé ávallt í forgangi við hönnun gatnamóta. Við leggjum því áherslu á að heildstætt mat á fyrirhugaðri útfærslu liggi fyrir áður en endanleg ákvörðun er tekin og að ekki verði ráðist í breytingar sem skerða öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda til að greiða götu bílaumferðar.