Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 293
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Samfylkingarinnar um gangbrautir á skólaleið barna í Rimahverfi, sbr. 11. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 7. október 2026. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags, 12. október 2026.
Svar

Samþykkt að vísa inn í vinnu við gerð umferðaröryggisáætlunar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir umsögnina og þær skýringar sem þar koma fram. Tillagan var lögð fram í kjölfar ítrekaðra ábendinga um að börn og forráðamenn þeirra upplifi sig ekki örugg á gönguleiðum til og frá Rimaskóla. Við leggjum áherslu á að slíkar ábendingar séu teknar alvarlega og brugðist við þeim með skjótum hætti. Umferðaröryggi barna verður ávallt að njóta forgangs og mikilvægt er að ráðast í fyrirbyggjandi aðgerðir áður en slys verða. Við óskum því eftir að umræddar gönguþveranir verði skoðaðar sérstaklega og nauðsynlegum úrbótum hraðað, hvort sem þær felast í merkingum gangbrauta, bættri lýsingu eða hraðalækkandi aðgerðum.