Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 293
Annað
‹ 5
6
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um hjólanet höfuðborgarsvæðisins, sbr. 14. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 7. október 2026. Einnig er lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags. 12. október 2026.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir svörin og fagna því að mikilvægi stofnleiða hjólreiða meðfram Höfðabakka sé áréttað. Það vekur hins vegar athygli að unnið sé áfram með endurgerð hægribeygjuframhjáhlaups án þess að fyrir liggi hvernig tryggja eigi örugga og greiða leið gangandi og hjólandi vegfarenda um gatnamótin. Umrædd hjólaleið er hluti af stofnneti hjólreiða höfuðborgarsvæðisins og mikilvægt að uppbygging þess verði ekki látin víkja fyrir aukinni afkastagetu bílaumferðar. Við leggjum áherslu á að heildstætt mat á öllum ferðamátum liggi fyrir áður en endanleg ákvörðun er tekin um útfærslu gatnamótanna og að umferðaröryggi allra vegfarenda verði haft að leiðarljósi.