Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 383
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins: Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs leggur til að umhverfis- og skipulagssviði verði falið að leggja fram tillögur um hvernig unnt sé að flýta innleiðingu snjallra umferðaljósastýringa í Reykjavík, með það að markmiði að bæta umferðarflæði, stytta ferðatíma og nýta betur núverandi samgönguinnviði. Við þá vinnu verði sérstaklega horft til þess hvernig snjallar ljósastýringar geti brugðist við í rauntíma við umferð og bætt flæði allra ferðamáta. Jafnframt verði skoðað hvernig slík stýring geti dregið úr óþarfa biðtíma, töfum og umferðarteppu og aukið afkastagetu gatnakerfisins án umfangsmikilla framkvæmda.
Svar

Samþykkt að vísa til umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar til umsagnar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn leggur áherslu á að tillögur sviðsins verði skýrar, tímasettar og kostnaðarmetnar og sýni með hvaða hætti unnt sé að flýta innleiðingu snjallra umferðarljósastýringa. Þar verði sérstaklega gerð grein fyrir mannaflaþörf, helstu flöskuhálsum og leiðum til að vinna hraðar, meðal annars með aukinni sjálfvirkni, þjónustusamningum eða útvistun verkefna. Mikilvægt er að mat á tæknilegum valkostum og rekstrarlíkönum sé hlutlaust og hafið yfir vafa. Því verði eftir föngum leitað óháðrar sérfræðiráðgjafar eða aflað samanburðarhæfra álita frá fleiri en einum ólíkum aðila, þar á meðal eftir atvikum birgjum og opinberum aðilum. Raunhæfir valkostir verði bornir saman með gagnsæjum hætti, meðal annars með tilliti til tækni, kostnaðar, innleiðingarhraða, mannaflaþarfar og skorti á sveigjanleika í tengslum við birgja. Meirihlutinn óskar jafnframt eftir að fram komi hvað þurfi til að tengja þau umferðarljós sem enn eru ótengd miðlægu stýrikerfi, flýta endurnýjun úreltra stýrikassa og fjölga gatnamótum sem njóta samfelldrar rauntímastýringar. Lagðar verði fram sviðsmyndir sem geri ráðinu kleift að taka upplýsta ákvörðun um fjármögnun og forgangsröðun verkefnisins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar samþykkja tillögur sem snúa að því að bæta umferðarflæði með snjallari ljósastýringum. Við vekjum þó athygli á því að farsæl innleiðing krefst þess að ráðnir verði inn sérfræðingar og fleiri hendur fengnar til að fylgja verkefninu eftir. Horfa verður engu að síður til rótar umferðartafa. Tafir í umferð stafa af dreifðri byggð, skipulagi borgarinnar sem var einkabílamiðað og þeim veruleika að meirihluti fólks býr of langt frá vinnu og skóla og er í raun þvingaður til að nota einkabílinn. Snjallljós munu duga skammt ef við töpum heildarmyndinni í skipulagsmálum. Þegar horft er til þess hvar næstu 20.000 Reykvíkingar eiga að búa er ljóst að ef við brjótum nýtt land norðan og austan við núverandi byggð mun umferðin aukast svo gríðarlega að ljósastýringar munu litlu breyta. Sjálfbær þétting byggðar og efling allra samgöngumáta er eina raunverulega framtíðarlausnin á umferðarvanda borgarinnar.