Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks í umhverfis og skipulagsráði þakka fyrir þá vinnu sem unnin hefur verið við uppfærslu og þróun umferðarljósakerfis Reykjavíkur. Fulltrúar flokkanna leggja áherslu á að áfram verði unnið markvisst að endurnýjun búnaðar, innleiðingu nýrrar tækni og gagnadrifinni stýringu umferðar með það að markmiði að bæta öryggi, draga úr töfum og auka skilvirkni samgöngukerfisins í heild. Mikilvægt að Reykjavíkurborg nýti ávallt nýjustu tækni og vísindi á sviði umferðarstýringar til að greiða fyrir umferð allra vegfarenda, hvort sem um er að ræða gangandi, hjólandi, notendur almenningssamgangna eða akandi. Þá er mikilvægt að þessi verkefni verði áfram í forgangi enda eru skilvirkar umferðarljósastýringar lykilþáttur í öruggu og vel starfandi borgarsamfélagi.