Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 383
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins: Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir að fela umhverfis- og skipulagssviði að yfirfara fyrirhugaða uppbyggingu og þéttingu byggðar við Starengi og Hverafold í Grafarvogi. Sviðið leggi fram tillögur um breytingar á skipulagi sem taka mið af sjónarmiðum íbúa, áhrifum á nærumhverfi og þjónustugetu hverfisins.
Svar

Samþykkt að vísa til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs með 5 fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins. Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar harma það að meirihlutinn leggist alfarið gegn frekari uppbyggingu í Grafarvogi. Börnum í Grafarvogi hefur fækkað um 2000 frá aldamótum og gríðarlega mikilvægt er fá fram lýðfræðilegar breytingar í hverfinu svo nýta megi innviði hverfisins á skilvirkari vegu. Auðvelt hefði verið að vinna tillögurnar áfram í deiliskipulagi í góðri samvinnu við íbúa hverfisins og taka þeirra sjónarmið, til dæmis er varða bílastæði og byggingarmagn, til greina.