Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 379
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í mars 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Skeifuna 7 og 9. Skipulagssvæðið afmarkast af götu Skeifunnar til suðurs, megin göngustíg í gegnum Skeifuna til vesturs, Suðurlandsbraut til norðurs og lóð Skeifunnar 9 til austurs. Skipulagsmörkum núgildandi deiliskipulags Skeifunnar, dags. 6. nóvember 2001, verður breytt samhliða. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir sameiningu lóðanna, niðurrifi á núverandi byggingum á lóð og að í þeirra stað komi randbyggð íbúðarhúsa með þjónustu og verslunum á jarðhæðum og íbúðum á efri hæðum. Á jarðhæð og í kjallara er gert ráð fyrir bílageymslum og ofan á þaki bílageymslu verður sameiginlegur inngarður fyrir íbúa. Á jarðhæð vestan við hús er gert ráð fyrir almenningsrými með skjólgóðu og gróðurríku útidvalarsvæði í tengslum við aðal göngu- og hjólastíginn sem liggur þvert um Skeifuna frá norðri til suðurs.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, lóðarhafa aðliggjandi lóða, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur og kynna hana fyrir almenningi.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst ekki gegn því að skipulagslýsing fyrir Skeifuna 7 og 9 fari í auglýsingu til að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila um fyrirhugaða uppbyggingu á svæðinu. Um er að ræða verulega breytingu á mikilvægu þróunarsvæði og mikilvægt að málið fari í opið samráðsferli á frumstigi. Þó verður að benda á að fyrirhuguð uppbygging felur í sér mjög mikla þéttingu þar sem byggingarmagn á lóðinni er margfaldað og gert ráð fyrir allt að 8 hæða byggð á svæði sem í dag einkennist af atvinnu- og þjónustustarfsemi. Þá er hér enn eitt dæmið um að starfandi atvinnuhúsnæði víki fyrir íbúðauppbyggingu í Skeifunni án þess að heildarsýn liggi fyrir um framtíðarþörf fyrir fjölbreytta atvinnu- og þjónustustarfsemi í borginni.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Hér í lok kjörtímabilsins, á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð, þegar 10 dagar eru í kosningar og borgarstjórn hefur takmarkað umboð til að taka skuldbindandi ákvarðanir er verið að hraða í gegn stórum og jafnvel umdeildum skipulagsákvörðunum. Fulltrúi óháðra og liðsmaður Miðflokksins telur í ljósi þess að eðlilegra hefði verið að að vísa slíkum ákvörðunum til nýrrar borgarstjórnar enda eru skipulagsmálin mjög umdeild víða og eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.

108 Reykjavík
Landnúmer: 105660 → skrá.is
Hnitnúmer: 10016106
Síðasta markaðsverð
630.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 2158 m² · 01.10.2020
Kaupskrá 3 eignir
630.000.000 kr. 01.10.2020
Atvinnuhúsnæði · 2158 m² · bygg. 1979 · HMS
630.000.000 kr. 01.10.2020
Atvinnuhúsnæði · 2158 m² · bygg. 1979 · HMS
630.000.000 kr. 01.10.2020
Atvinnuhúsnæði · 2158 m² · bygg. 1979 · HMS
Deiliskipulag
stgr. 1.46 Skeifan - Fenin
Samþykkt 06.11.2001 · Deiliskipulag. Nýtt DSK