Samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggst ekki gegn því að fyrirliggjandi tillaga fari í auglýsingu til að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila, þótt betur færi á að ný borgarstjórn taki ákvörðun um slíkt þegar aðeins 10 dagar eru til kosninga. Um er að ræða umfangsmikla breytingu á svæðinu og mikilvægt að málið fari í opið samráðsferli áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Þó verður að benda á að hér er enn eitt dæmið um að starfandi atvinnu- og þjónustuhúsnæði víki fyrir mjög þéttri íbúðauppbyggingu í Reykjavík. Mikilvægt er að borgin horfi einnig til langtímaþarfar fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, þjónustu og minni rekstrareiningar innan borgarmarkanna, en ekki eingöngu til hámarksþéttingar íbúðarbyggðar. Jafnframt vekur athygli að fyrirhuguð íbúðabyggð er staðsett við mjög umferðarþungt svæði þar sem umferðarhávaði er þegar yfir viðmiðunarmörkum samkvæmt gögnum málsins. Mikilvægt er að áhrif hávaða, loftgæða, birtuskilyrða og þéttleika á lífsgæði íbúa verði metin með ítarlegum hætti við áframhaldandi vinnslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Framsóknar, Sjálfstæðisflokks og Fulltrúi óháðra Marta Guðjónsdóttir liðsmaður Miðflokksins harma að málmeðferðartillaga Framsóknar um frestun málsins hafi verði fellt af meirihluta flokkunum. Það kom bersýnilega í ljós að ekki er eining innan meirihlutans um þessa tilteknu útfærslu í umræðum um málið, auk þess skal benda á að vegna nálægðar komandi kosninga væri eðlilegt að ný borgarstjórn myndi taka þetta mál áfram og hraða afgreiðslu sem frekast má.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Hér í lok kjörtímabilsins, á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð, þegar 10 dagar eru í kosningar og borgarstjórn hefur takmarkað umboð til að taka skuldbindandi ákvarðanir er verið að hraða í gegn stórum og jafnvel umdeildum skipulagsákvörðunum. Fulltrúi óháðra og liðsmaður Miðflokksins telur í ljósi þess að eðlilegra hefði verið að að vísa slíkum ákvörðunum til nýrrar borgarstjórnar enda eru skipulagsmálin mjög umdeild víða og eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.