Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 379
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Kringluna 7. Skipulagssvæðið afmarkast af Listabraut til suðurs, Kringlumýrarbraut til vesturs, borgarlandi sunnan Miklubrautar til norðurs og Kringlugötu til austurs. Hið nýja deiliskipulag nær í fyrstu til lóðar nr. 7 við Kringluna, en ráðgert er að fella nýsamþykkta deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðir nr. 1-5 við Kringluna inn í það.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, lóðarhafa aðliggjandi lóða, umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur og kynna hana fyrir almenningi.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Hér í lok kjörtímabilsins, á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráð, þegar 10 dagar eru í kosningar og borgarstjórn hefur takmarkað umboð til að taka skuldbindandi ákvarðanir er verið að hraða í gegn stórum og jafnvel umdeildum skipulagsákvörðunum. Fulltrúi óháðra og liðsmaður Miðflokksins telur í ljósi þess að eðlilegra hefði verið að að vísa slíkum ákvörðunum til nýrrar borgarstjórnar enda eru skipulagsmálin mjög umdeild víða og eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni.

103 Reykjavík
Landnúmer: 107298 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013331
Síðasta markaðsverð
335.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 483 m² · 07.05.2025
Kaupskrá 4 eignir
335.000.000 kr. 07.05.2025
Atvinnuhúsnæði · 483 m² · bygg. 1981 · HMS
225.000.000 kr. 08.09.2022
Atvinnuhúsnæði · 381 m² · bygg. 1981 · HMS
100.000.000 kr. 04.01.2007
Atvinnuhúsnæði · 274 m² · bygg. 1981 · HMS
160.000.000 kr. 20.09.2006
Atvinnuhúsnæði · 486 m² · bygg. 1981 · HMS
Deiliskipulag
Deiliskipulag Kringlunnar
Samþykkt 13.05.1986 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag