Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 377
Frestað
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar: Lagt er til að í tengslum við lok byggingarframkvæmda á Heklureit verði beygjuakrein komið fyrir að nýju á Nóatúni, á kafla milli Brautarholts og Laugavegar, eins og var um áratugaskeið og þannig horfið frá þrengingu götunnar á umræddum kafla. Beygjuakreinin þjóni umferð, sem fer niður Nóatún og inn á Laugaveg til austurs. Skipulagsfulltrúa er falið að leggja til viðeigandi breytingar á skipulagi vegna málsins ef þörf krefur.
Svar

Frestað.