Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:
Tillagan er felld á grunni þess að nýbúið er að endurskoða bílastæðastefnu borgarinnar og hvorki komin reynsla á breytingarnar né almenn kynning á stefnunni farið fram. Könnun af þessu tagi er því ekki tímabær hvað sem síðar kann að verða.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Fulltrúi Framsóknar mótmælir harðlega að meirihluti Umhverfis- og skipulagsráð skuli fella tillögu um að skoðanakönnun verði framkvæmd um bíla- og hjólastæðastefnu borgarinnar og þannig fá afstöðu borgarbúa til hennar. Hér er á ferðinni en ein staðfesting á því að núverandi meirihluti hefur ekki áhuga á samráð við íbúa Reykjavíkur og harmar Framsókn það mjög.