Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 378
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar um Nóatún, sbr. 21. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 22. apríl 2026. Tillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata og Vinstri grænna gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Ljóst er að meirihlutinn er andvígur öllum tillögum sem geta greitt fyrir umferð enda er það í takt við þá tafastefnu sem vinstri meirihlutar í borgarstjórn hafa ástundað árum saman og hyggjast ástunda áfram með því að fækka akreinum og þrengja að umferð einkabíla.