Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 378
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar um Korpúlfsstaði, sbr. 22. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs dags. 22. apríl 2026. Tillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands, Pírata og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Mörtu Guðjónsdóttur:
Mikilvægt er að bílastæðum við golfvöllinn við Korpúlfsstaði verði fjölgað enda fer iðkendum golfíþróttarinnar fjölgandi og þörf er á fleiri bílastæðum við völlinn. Það skýtur því skökku við að meirihlutinn, sem gefur sig út fyrir að standa fyrir íbúalýðræði og samráði við íbúa og hagaðila, felli tillögu þess efnis að fundinn verði hentugur staður fyrir ný bílastæði við golfvöllinn í samráði við Golfklúbb Reykjavíkur.