Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 377
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna Reykjavegar, Hofteigs og Kirkjuteigs. Í breytingunni sem lögð er til felst að loka fyrir umferð Kirkjuteigs annars vegar og hins vegar Hofteigs inn á Reykjaveg og að minnka óverulega lóð Laugarnesskóla til að koma fyrir snúningssvæði við enda Hofteigs, samkvæmt uppdr. Landslags, dags. 13. apríl 2026.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna:
Gefið er að öryggi muni bætast til muna við lokun Hofteigs og breytingar á Reykjavegi, en rétt er að minna á að á Reykjavegi er nú mjög mikilvæg göngu- og hjólaþverun við Hofteig. Samkvæmt deiliskipulagsteikningum sem kynntar eru með málinu hliðrast sú þverun til norðurs, af beinni leið hjóla- og göngustígs um Laugardal yfir á gangstétt Hofteigs. Rétt er að brýna það að sú hliðrun sé ekki gerð nema með því að leiðrétta þá tengingu. Þessi leið er með fallegri hjólaleiðum Reykjavíkur, en er umfram allt öruggasta hjólaleiðin sem tengir Laugardal og Vogahverfi við fjölmenna íbúða- og atvinnubyggð í Túnum, um Hofteig og yfir brú á Kringlumýrarbraut. Börn beggja vegna Kringlumýrarbrautar og Laugardals sækja meðal annars tónlistarnám og íþróttir í hvora átt um þessa leið og fjöldi fullorðinna sömuleiðis fer hana til og frá vinnu. Sjálfsagt er að hafa hana í öndvegi.