Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar vekja athygli á að samkvæmt framlögðu árshlutauppgjöri er umhverfis- og skipulagssviðs rekið 254 milljónum króna innan fjárheimilda. Það sýnir innri aga og hagsýni stjórnenda og starfsfólks á gólfinu. Sé litið fram hjá árstíðabundinni vetrarþjónustu er grunnreksturinn í jafnvægi. Í Eignasjóði blasir hins vegar við um 2,1 milljarðs króna neikvætt bókhaldslegt frávik sem hefur þó ekki áhrif á sjóðsstreymi eða lausafjárstöðu. Að baki þessum frávikum liggja meðvitaðar og tæknilegar bókhaldsráðstafanir, t.a.m. afskriftir vegna yfirfærslu hjúkrunarheimila til ríkisins, afskriftir vegna kostnaðar við hönnun og verksamninga um verkefni sem hætt hefur við og áhrifa af verðbólgu sem veldur 1,7 milljarða hækkun fjármagnsgjalda vegna ytri efnahagsþátta og verðbóta. Afskriftirnar eru reiknaðar stærðir sem hafa engin áhrif á handbært fé, sjóðsstreymi eða bankabók borgarinnar. Það að nota tímabundinn pappírshalla til að búa til gervikrísu og réttlæta kröftugan niðurskurð í velferð og forvörnum úti í hverfunum er ámælisvert og sýnir nýja og að óþörfu harðari forgangsröðun.