Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 391
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram í trúnaðarbók fjárhagsáætlun umhverfis- og skipulagssviðs fyrir árin 2027 - 2030, drög að gjaldskrá fyrir umhverfis- og skipulagssvið árið 2027, drög að greinargerð umhverfis- og skipulagssviðs með fjárhagsáætlun 2027 og drög að rekstraryfirliti aðal- og eignasjóðs fyrir árið 2027. Einnig er lögð fram tillaga að úthlutun fjárheimilda árið 2027, forsendur fjárhagsáætlunar 2027 - 2030 og tíma- og verkáætlun fjárhagsáætlunar 2027. Umhverfis- og skipulagsráð staðfestir að drög að starfs- og fjárhagsáætlun séu í samræmi við ákvarðanir fagráðs um áherslur og forgangsröðun og markaða stefnu í málaflokknum. Bókanir undir þessum lið eru færðar í trúnaðarbók.