Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 387
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á nýjum hólmum í Tjörninni - hönnun og fyrirhugaðar framkvæmdir.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn þakkar fyrir góða kynningu á nýjum hólmum í Reykjavíkurtjörn. Um er að ræða mikilvægt verkefni sem stuðlar að bættu lífríki Tjarnarinnar, skapar betri skilyrði fyrir fuglalíf og annan gróður og dýralíf og stuðlar jafnframt að auknum vatnsgæðum. Tjörnin er ein af helstu náttúru- og borgarperlum Reykjavíkur og því mikilvægt að standa vörð um lífríki hennar og vinna markvisst að því að bæta vistkerfi hennar til framtíðar. Verkefnið er hluti af Icewater verkefninu og hefur hlotið styrk.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Nýr hólmi í Tjörninni er spennandi verkefni sem mun bæta ásýnd svæðisins. Ekki síður mikilvægt er hlutverk hólmans við að styðja við líffræðilegan fjölbreytileika, meðal annars með fjölbreyttari gróðri og bættum skilyrðum fyrir fuglalíf. Til framtíðar væri spennandi að ráðast í fleiri sambærileg verkefni sem bæði gætu styrkt umhverfi Tjarnarinnar og aukið líffræðilegan fjölbreytileika enn frekar. Sérstaklega mætti horfa til austurkants Tjarnarinnar við Fríkirkjuveg, þar sem tækifæri eru til að skapa meira rými fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, um leið og gróður og lífríki svæðisins fengi aukið vægi.